Fotbolti.net
10.12.13 - 09:25
Magnús Már Einarsson

Sverrir Ingi til Viking (Staðfest)

Frá undirskriftinni í dag.

Frá undirskriftinni í dag.

Canon

Mynd: Total Football

Sverrir Ingi Ingason hefur gengið til liðs við norska félagið Viking en hann skrifaði undir samning hjá félaginu í morgun.

Viking og Breiðablik komust að samkomulagi um kaupverð í síðustu viku og Sverrir stóðst síðan læknisskoðun hjá Viking í gær.
Sverrir er fyrirliði U21-landsliðsins og hefur verið lykilmaður í hjarta varnarinnar hjá Breiðabliki.

Það verður töluð íslenska á æfingum hjá Viking því fyrir hjá félaginu eru Indriði Sigurðsson og Jón Daði Böðvarsson auk þess sem Björn Daníel Sverrisson og Steinþór Freyr Þorsteinsson ganga í raðir þess um áramótin.

Viking endaði í fimmta sæti í norsku úrvalsdeildinni á nýliðnu tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.