Fotbolti.net
10.12.13 - 11:37
Magnús Már Einarsson

Yossi Benayoun til QPR (Staðfest)

Yossi Benayoun til QPR (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Yossi Benayoun hefur gengið til liðs við QPR í ensku Championship deildinni en hann gerði samning út tímabilið.
Þessi 33 ára gamli leikmaður hefur verið án félags síðan samningur hans við Chelsea rann út í sumar.

Malaga á Spáni, Reims í Frakklandi og Leicester höfðu einnig áhuga á Ísraelsmanninum en hann hefur æft með QPR undanfarnar vikur og í kjölfarið samið við félagið.

,,Ég er ánægður með að þetta er allt klárt og er glaður að hafa gengið til liðs við QPR,\" sagði Benayoun.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.