10.12.15 - 10:37
Magnús Már Einarsson
Hareide tekinn við Dönum (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Åge Hareide hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Dana en hann skrifaði undir tveggja ára samning í dag.
Morten Olsen hætti sem þjálfari Dana eftir tap í umspili um sæti á EM gegn Svíum á dögunum.
Olsen hafði stýrt danska landsliðinu frá því árið 2000 en Hareide tekur nú við af honum.
Hareide var að hætta sem þjálfari Kára Árnasonar og félaga í Malmö en síðasti leikur hans þar var 8-0 tapið gegn Real Madrid í fyrrakvöld.
Hareide er Norðmaður en hann hefur reynslu af þjálfun landsliða eftir að hafa þjálfað norska landsliðið frá 2003 til 2008.