Chelsea tryggði sig upp úr riðlakeppni Meistaradeildarinnar með 2-1 sigri á Lille fyrr í kvöld. Lærisveinar Frank Lampard komust 2-0 yfir í fyrri hálfleik en Loic Remy minnkaði muninn fyrir gestina eftir leikhlé.
Chelsea var mun betri aðilinn í kvöld og hefði getað unnið stærra. Lampard var ósáttur með færanýtingu sinna manna og óþarfa stress sem fylgdi því að fá mark á sig á lokakafla leiksins.
„Þetta var of tæpt undir lokin, við áttum að klára þennan leik mikið fyrr. Við gjörsamlega áttum fyrri hálfleikinn en fundum ekki þriðja markið í síðari hálfleik og svo minnkuðu þeir muninn," sagði Lampard.
„Þetta var smá stress í endan en við sigldum þessu í höfn. Þetta sýnir hversu mikla vinnu við eigum framundan, þetta var leikur sem við áttum að klára mikið fyrr. Þetta er eitthvað sem við verðum að bæta."
Lampard er spenntur fyrir framhaldinu í Meistaradeildinni og segist ekki vera smeykur við að mæta stórliði í næstu umferð.
„Meistaradeildin snýst um að spila við bestu liðin. Við erum ánægðir með að vera komnir áfram og munum leggja allt í sölurnar gegn okkar næstu andstæðingum, sama hverjir þeir verða.
„Það var afar mikilvægt fyrir félagið að komast upp úr riðlakeppninni. Þetta er stórt félag sem á heima í útsláttarkeppninni og næstu leikir verða gríðarlega mikilvægir fyrir framtíð ungra leikmanna félagsins."
Félagaskiptabann Chelsea var endurkallað á dögunum og mun félagið því geta keypt nýja leikmenn í janúar. Lampard býst við að fá nokkra nýja inn.
„Við erum byrjaðir að ræða um hvaða leikmenn gætu styrkt hópinn. Við misstum mikilvægan leikmann með sölunni á Eden Hazard og núna þurfum við aukna samkeppni í þessum skapandi stöðum í sóknarleiknum."
Willian, Pedro, Callum Hudson-Odoi og Christian Pulisic berjast um byrjunarliðsstöðurnar við hlið Tammy Abraham í sóknarlínunni sem stendur.
Athugasemdir