Liverpool sló Red Bull Salzburg úr Meistaradeildinni með 0-2 sigri í Austurríki fyrr í kvöld.
Salzburg endar þar með í 3. sæti í gríðarlega erfiðum riðli á meðan Liverpool fer áfram í 16-liða úrslitin ásamt Napoli.
„Til hamingju Liverpool! Við ætlum að sjá til hvað við getum gert í Evrópudeildinni. Hver veit...við gætum mæst aftur í næsta Ofurbikar!" segir í Twitter færslu frá aðgangi Salzburg.
Salzburg tók einnig þátt í útsláttarkeppni Evrópudeildarinnar í fyrra. Þar datt liðið úr leik gegn Napoli þrátt fyrir frábæra frammistöðu í 3-1 sigri á heimavelli.
Liverpool vann Meistaradeildina á síðustu leiktíð og er talið meðal líklegustu liða til að komast alla leið í úrslitin í vor.
Sigurvegari Meistaradeildarinnar mætir sigurvegara Evrópudeildarinnar í Ofurbikar Evrópu í ágúst á næsta ári.
Congrats and all the best @LFC! We're off to see what we can do in the Europa League. Who knows...we might just meet again at the next Super Cup!#SALLIV 0-2
— FC Red Bull Salzburg EN (@FCRBS_en) December 10, 2019
Athugasemdir