Aðstoðarþjálfari Gróttu: Fótboltinn getur reynst óvæginn
Auglýsing

Paul Westren aðstoðarþjálfari Gróttu t.v.

Mynd: Grótta

Grótta tók á móti Fylki á Vivaldivellinum á Seltjarnarnesi í kvöld og lauk leiknum með 2-5 sigri Fylkis eftir að Grótta náði 2-0 forustu í fyrri hálfleik. Paul Westren aðstoðarþjálfari Gróttu kom í viðtal að leik loknum.
Lestu um leikinn: Grótta 2 - 5 Fylkir
"Það er klisjukennt að segja það en þetta var leikur tveggja hálfleikja. Við erum 2-0 yfir eftir fyrri hálfleikinn, að mínu mati var leikurinn þrátt fyrir það mjög jafn, við vorum góðir í að beita skyndisóknum þegar þeir pressuðu á okkur. Þeir eru augljóslega með mjög gott lið. "
"Við misstum fyrirliðann okkar af velli í hálfleik og því miður hafði það mikil áhrif á leik okkar, Grímur er okkur mjög mikilvægur, það ætti ekki að hafa svona mikil áhrif að missa einn leikmann úr liðinu en það hafði greinilega mikil áhrif á okkar leik í seinni hálfleik."
"Ég varð fyrir vonbrigðum með varnarleikinn okkar í seinni hálfleik. Við erum ekki nógu sterkir í seinni hálfleik, við töpum einvígum og þurftum að sýna meiri karakter. Það er eitthvað sem við þurfum að fara yfir, læra af og koma til baka sterkari. Við erum með ungt lið og gerum mistök. Fylkismenn eru óvægnir og refsa okkur fyrir mistökin."
"Það er hægt að taka jákvæða punkta úr þessum leik. Við erum með 15 og 16 ára stráka sem spila þennan leik, liðið er ungt, þegar liðið er svona ungt þá verða má búast við sveiflum í frammistöðu, mér fannst að þeir reynslumeiri í okkar liði hefðu mátt aðstoða þá sem yngri eru betur í dag"
Allt viðtalið við Paul Westren má finna í spilaranum hér að ofan