Fotbolti.net
10.12.21 - 11:22
Elvar Geir Magnússon

Grétar Rafn hættur hjá Everton (Staðfest)

Grétar Rafn Steinsson.

Grétar Rafn Steinsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grétar Rafn Steinsson er hættur hjá Everton þar sem hann hefur stýrt leikmannakaupum og þróun leikmanna félagsins. Hann vann náið með yfirmanni fótboltamála hjá félaginu, Marcel Brands, sem lét af störfum á dögunum.

Það hefur verið mikil ólga bak við tjöldin hjá Everton og eftir að Marcel Brands hætti ákvað Grátar einnig að láta af störfum.

Brands fékk Grétar til Everton fyrir þremur árum síðan en Grétar var þá starfandi sem yfirmaður fótboltamála hjá Fleetwood Town. Upphaflega var Grétar ráðinn sem yfirnjósnari Everton í Evrópu en fékk síðar stöðuhækkun.
Samkvæmt enskum fjölmiðlum var það ákvörðun Grétars að segja skilið við Everton en eftir brotthvarf hans og Brands verður það stjórinn Rafa Benítez sem tekur ákvarðanir um leikmannakaup.

Sjá einnig:
Benítez sagður vilja Grétar Rafn burt - Átök bak við tjöldin
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.