Fotbolti.net
10.12.21 - 11:41
Elvar Geir Magnússon

Halldór Jón í ÍBV (Staðfest)

Halldór Jón Sigurður Þórðarson.

Halldór Jón Sigurður Þórðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Halldór Jón Sigurður Þórðarson hefur gengið í raðir ÍBV. Halldór er kantmaður og bakvörður sem gerir þriggja ára samning við Eyjaliðið sem komst upp í efstu deild á liðnu tímabili.

„Halldór lék í sumar ellefu leiki í efstu deild og vakti athygli fyrir kraftmikla og öfluga spilamennsku í upphafi móts. Dóri er 25 ára og kemur með góða reynslu og gott hugarfar inn í ÍBV hópinn," segir í fréttatilkynningu ÍBV.
„Við bjóðum Halldór Jón Sigurð hjartanlega velkominn til Eyja! Áfram, ÍBV, alltaf, alls staðar!"

Eyjamenn hafa verið að styrkja sig að undanförnu en greint var frá því á dögunum að sóknarmaðurinn Andri Rúnar Bjarnason myndi ganga í raðir félagsins.

ÍBV

Komnir
Alex Freyr Hilmarsson frá KR

Farnir
Gonzalo Zamorano í Selfoss
Stefán Ingi Sigurðarson til Breiðabliks (var á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.