Fotbolti.net
10.12.21 - 17:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Katie Cousins líka til Angel City (Staðfest)

Katie Cousins líka til Angel City (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Katherine Amanda Cousins, sem oftast er kölluð Katie Cousins, er genginn í raðir Angel City í Bandaríkjunum.

Katie kom til Þróttar fyrir síðasta tímabil. Hún átti mjög gott tímabil í sumar og var valin í lið ársins í lok tímabils.
Katie er annar leikmaðurinn sem Angel City krækir í úr úrvalsdeild kvenna því Mary Alice var á dögunum tilkynnt sem leikmaður félagsins. Mary varð Íslandsmeistari með Val í sumar.

Sjá einnig:
Mary Alice yfirgefur Val og fer til Angel City (Staðfest)

Katie er 25 ára miðjumaður sem mun leika í treyju 22 hjá Angel City.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.