10.12.21 - 19:22
Victor Pálsson
Tedesco ráðinn stjóri Leipzig (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Domenico Tedesco hefur verið ráðinn nýr stjóri RB Leipzig í Þýskalandi og skrifar undir til ársins 2023.
Þetta hefur þýska félagið staðfest en Jesse Marsch var rekinn frá Leipzig fyrr í mánuðinum eftir slakt gengi.
Margir voru mjög spenntir fyrir komu Marsch sem hafði gert virkilega góða hluti með systrafélag Leipzig í RB Salzburg.
Leipzig er þessa stundina í neðri helming þýsku Bundesligunnar sem er ekki ásættanlegt miðað við hóp liðsins.
Tedesco er aðeins 36 ára gamall en hann þjálfaði áður Schalke frá 2017 til 2019 og Spartak Moskvu frá 2019 til 2021.