11.01.13 - 11:17
Magnús Már Einarsson
Eiður Aron aftur í ÍBV (Staðfest)

Eiður Aron Sigurbjörnsson.

Mynd: Fótbolti.net - Þórdís Inga Þórarinsdóttir

ÍBV hefur komist að samkomulagi við sænska félagið Örebro um að fá varnarmanninn Eið Aron Sigurbjörnsson á láni.
Óskar Örn Ólafsson formaður knattspyrnudeildar staðfesti þetta í samtali við Eyjafréttir.
Eiður Aron fór frá ÍBV til Örebro fyrir einu og hálfu ári en hann fékk afar fá tækifæri með sænska félaginu á síðasta ári.

Hjá ÍBV mun Eiður Aron fylla skarð Rasmus Christiansen sem gekk á dögunum til liðs við Ull/Kisa.
Eiður, sem er 22 ára, hefur samtals leikið 60 leiki með ÍBV og skorað í þeim þrjú mörk.
Hann verður í eldlínunni þegar ÍBV mætir Breiðabliki í fyrsta leiknum í Fótbolta.net mótinu í Kórnum klukkan 21:00 í kvöld.

Heimild: Eyjafréttir