Fotbolti.net
11.01.13 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Michael Abnett í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Michael Abnett.

Michael Abnett.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ívar Atli Sigurjónsson

BÍ/Bolungarvík hefur samið við hægri bakvörðinn Michael Abnett en hann mun leika með liðinu í fyrstu deildinni í sumar.

Ablett lék með BÍ/Bolungarvík árið 2011 en þá skoraði hann tvö mörk í 20 leikjum í fyrstu deildinni.
Michael var á mála hjá Crystal Palace þegar hann var yngri en hefur flakkað á milli liða í neðri deildum á Englandi.

Abnett er væntanlegur til landsins 3. febrúar og mun leika sinn fyrsta leik gegn Víking Ólafsvik í Lengjubikarnum þann 16. febrúar.

Þessa dagana er hinn enski Joy Storer einnig á reynslu hjá BÍ/Bolungarvík. Joy sem er 24 ára Englendingur getur spilað sem miðvörður, bakvörður og á miðjunni en hann gæti leikið með BÍ/Bolungarvík í æfingaleik gegn HK í kvöld.

Heimild: Heimasíða BÍ/Bolungarvíkur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.