Fotbolti.net
11.01.13 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Óttar Steinn í Víking R. (Staðfest)

Óttar í leik gegn Þór í fyrrasumar.

Óttar í leik gegn Þór í fyrrasumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Óttar Steinn Magnússon, fyrirliði Hattar, hefur gengið til liðs við Víking R. en þetta staðfesti Heimir Gunnlaugsson í meistaraflokksráði félagsins í samtali við Fótbolta.net í dag.

Óttar Steinn hefur skrifað undir þriggja ára samning við Víking en samningur hans hjá Hetti rann út um áramótin.
Þessi 23 ára gamli leikmaður er uppalinn hjá Hetti en hann lék þó með Keflvíkingum í öðrum flokki auk þess sem hann spilaði hluta sumarsins 2009 með Grindavík.

Samtals hefur Óttar Steinn skorað átta mörk í 95 deildar og bikarleikjum með Hetti á ferli sínum en hann lék sinn fyrsta leik sumarið 2004.

Síðastliðið sumar skoraði Óttar þrjú mörk í tuttugu leikjum þegar Höttur féll úr fyrstu deildinni.

Óttar er fjórði leikmaðurinn sem Víkingur R. fær í sínar raðir í vetur en áður höfðu Andri Steinn Birgisson, Ingvar Þór Kale og Ívar Örn Jónsson komið til félagsins.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.