11.01.13 - 17:24
Magnús Már Einarsson
Sahin farinn frá Liverpool til Dortmund (Staðfest)

Nuri Sahin.

Mynd: Getty Images

Nuri Sahin.

Mynd: Getty Images
Liverpool hefur staðfest að Nuri Sahin er farinn frá félaginu eftir að hafa verið á láni frá Real Madrid síðan í ágúst.
Sahin átti að vera á láni út tímabilið en hann hefur hins vegar ekki náð að festa sig í sessi hjá Liverpool.

Sahin er nú farinn til Dortmund á láni út tímabilið en hann lék þar áður en hann fór til Real Madrid árið 2011.
Sahin kom upp í gegnum unglingastarf Dortmund og var farinn að leika með aðalliðinu einungis 17 ára gamall. Ferill hans hefur hinsvegar ekki náð þeim hæðum sem reiknað var með eftir að hann gekk í raðir Real Madrid.
Hjá Liverpool lék þessi 24 ára gamli leikmaður tólf leiki í öllum keppnum og skoraði þrjú mörk.