11.01.13 - 15:33
Daníel Freyr Jónsson
Taison genginn í raðir Shakhtar Donetsk (Staðfest)

Taison.

Mynd: Getty Images

Taison.

Mynd: Getty Images
Brasilíumaðurinn Taison er genginn í raðir Shakhtar Donetks frá Metalist fyrir 15 milljónir evra.
Þar með er ljóst að Evrópumeistarar Chelsea munu ekki fá leikmanninn, en hann hafði verð sterklega orðaður við félagið nú síðustu vikur.
Taison er 24 ára gamall og skrifaði hann undir fimm ára samning hjá Shakhtar, en félagið er með 13 stiga forystu í úkraínsku úrvalsdeildinni þegar 18 umferðir hafa verið spilaðar.
Frammistaða Taison hjá Metalist hafði vakið talsverða athygli á meðal stærri félaga í Evrópu og var Chelsea þar á meðal. Staðfesti leikmaðurinn meðal annars fyrir skömmu að hann hefði þegar rætt við enska félagið um að ganga í raðir þess.
Taison gekk í raðir Metalist frá Internacional í heimalandi sínu árið 2010. Hann lék 57 deildarleiki með félaginu og skoraði í þeim 13 mörk.