11.01.14 - 15:11
Ívan Guðjón Baldursson
Aiden McGeady til Everton (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Everton er búið að kaupa írska kantmanninn Aiden McGeady af Spartak Moskvu í Rússlandi.
McGeady vildi flytja með fjölskylduna frá Rússlandi og var þetta allt tilkynnt rétt fyrir viðureign Everton gegn Norwich sem hófst fyrir skömmu.

McGeady er þekktur fyrir hraða sinn á kantinum og góða tækni. Hann er búinn að skrifa undir fjögurra og hálfs árs samning við Everton.
Ekki er vitað hve mikið Everton greiddi fyrir McGeady en hann hefur verið að reyna að komast burt frá Moskvu í einhvern tíma.