11.01.16 - 18:53
Elvar Geir Magnússon
Lionel Messi bestur í heimi (Staðfest)
Carli Lloyd best í kvennaflokki

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Lionel Messi hefur unnið sinn fimmta gullknött en hann var valinn besti fótboltamaður heims 2015. Athöfnin fer fram í Sviss og hefur verið gríðarlegt stuð.
Neymar og Cristiano Ronaldo voru einnig tilnefndir en þurftu að horfa á Messi lyfta gullknettinum.
Messi var magnaður í liði Barcelona sem vann spænska meistaratitilinn, Konungsbikarinn og sjálfa Meistaradeild Evrópu.
„Að hafa unnið fimm gullbolta er magnaður árangur. Þetta er sérstök stund fyrir mig. Ég gat ekki leyft mér að dreyma um þetta sem strákur,\" sagði Messi.
Carli Lloyd, miðjumaður bandaríska kvennalandsliðsins, er besti leikmaður heims í kvennaflokki en bandaríska liðið varð heimsmeistari á liðnu ári. Lloyd táraðist á athöfninni en hún var að vinna þessi verðlaun í fyrsta sinn.
„Haldið áfram að elta drauma ykkar,\" sagði hún eftir að hafa tekið við verðlaununum.

FIFA #BallondOr 2015 winner #Messi received 41.33% of all votes ahead of #Cristiano (27.76%) & #Neymar (7.86%).
— FIFA Media (@fifamedia) January 11, 2016
Carli Lloyd besta fótboltakona heims.

Mynd: Getty Images