Fotbolti.net
11.01.16 - 12:56
Magnús Már Einarsson

Sebastian Svard í Þrótt (Staðfest)

Sebastian Svard í Þrótt (Staðfest)
Canon

Mynd: Þróttur

Þróttur hefur samið við Sebastian Svard, fyrrum leikmann Arsenal. Sebastian er 32 ára gamall danskur miðvörður en hann getur einnig spilað á miðjunni.
Sebastian spilaði með Þrótti í 3-1 tapi gegn ÍA í Fótbolta.net mótinu á laugardaginn en hann hefur nú samið við félagið.

Segbastian var á mála hjá Arsenal frá 1999 til 2006 en hann hefur einnig leikið með Gladbach í þýsku úrvalsdeildinni á ferli sínum.

„Að fá Seb er stór samningur fyrir félagið og Ísland. Hann er ótrúlegur atvinnumaður og mun hjálpa okkur á næsta stig,\" sagði Gregg Ryder þjálfari Þróttar.

„Stuðningsmennirnir eiga eftir að elska hann og aðrir leikmenn geta lært af honum. Heilt yfir sýnir þessi samningur öðrum í deildinni að Þróttarar verða með keppnishæfan hóp á þessu ári.\"

Hann fór 17 ára gamall til Arsenal og var á mála hjá félaginu til ársins 2006. Hann fékk fá tækifæri með aðalliði félagsins en kom þó við sögu í enska deildabikarnum. Á tíma sínum hjá Arsenal fór Svard einnig til Stoke, Vitória Guimarães, FC Kaupmannahöfn og Bröndby á láni.

Árið 2006 samdi Svard við Gladbach í Þýskalandi þar sem hann spilaði í efstu og næstefstu deild til ársins 2010. Síðan þá hefur Svard meðal annars leikið með Syrianska í Svíþjóð, Silkeborg í Danmörku, Wycombe Wanderers á Englandi og síðast Songkhla United í Tælandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.