Erik Hamren, þjálfari íslenska landsliðsins hefur opinberað byrjunarlið Íslands sem að mætir Svíþjóð í æfingaleik í Katar í dag.
Leikurinn hefst klukkan 16:45 og munum við færa fréttir í allan dag varðandi leikinn.
Leikurinn hefst klukkan 16:45 og munum við færa fréttir í allan dag varðandi leikinn.
Eiður Aron Sigurbjörnsson byrjar í hjarta varnarinnar en þetta er hans fyrsti landsleikur fyrir Ísland. Hjörtur Hermannson er honum við hlið en Birkir Már og Böðvar Böðvarsson eru bakverðir.
Fredrik Schram stendur í rammanum.
Óttar Magnús Karlsson byrjar úti á hægri kanti en Guðmundur Þórarinsson á þeim vinstri. Á miðsvæðinu eru síðan Eggert Gunnþór og Samúel Kári.
Andri Rúnar Bjarnason og Arnór Smárason eru fremstir í tveggja manna framlínu.
Þetta er sama byrjunarlið og Fótbolti.net stillti upp sem líklegu byrjunarliði í gær.
Hér að neðan má sjá byrjunarlið Íslands í leiknum.
Athugasemdir