mán 11. janúar 2021 20:38
Brynjar Ingi Erluson
Özil: Mun aldrei sjá eftir því að hafa farið til Arsenal
Mesut Özil er líklega á förum
Mesut Özil er líklega á förum
Mynd: Getty Images
Þýski sóknartengiliðurinn Mesut Özil segir að hann eigi aldrei eftir að sjá eftir því að hafa gengið til liðs við Arsenal frá Real Madrid.

Özil hefur ekkert spilað með Arsenal síðan gegn West Ham í mars á síðasta ári en hann var ekki valinn í Evrópu- og úrvalsdeildarhóp liðsins fyrir þetta tímabil.

Hann verður samningslaus í sumar og er hann sterklega orðaður við tyrkneska félagið Fenerbahce en hann býður nú fylgjendum sínum upp á að spyrja hann spurninga á Twitter.

Özil er spurður út í tíma hans hjá Arsenal en hann sér ekki eftir neinu.

„Auðvitað hef ég notið þess að vera hér. Það hafa verið hæðir og lægðir en ég mun aldrei sjá eftir því að hafa gengið til liðs við Arsenal. Ef ég á að vera hreinskilinn þá voru síðustu leikirnir fyrir hléið á síðasta tímabili afar skemmtilegir," skrifaði Özil.

„Ég naut þess mjög mikið og mér fannst við vera á réttri leið með liðið en eftir að deildin fór aftur af stað þá breyttust hlutirnir því miður," sagði hann ennfremur.
Athugasemdir
banner
banner
banner