11.02.13 - 16:15
Magnús Már Einarsson
Andre Santos til Gremio (Staðfest)

Santos og Van Persie eru góðir félagar.

Mynd: Getty Images

Santos og Van Persie eru góðir félagar.

Mynd: Getty Images
Andre Santos, vinstri bakvörður Arsenal, hefur formlega gengið til liðs við Gremio á láni út tímabilið.
Santos hefur ekki staðið undir væntingum frá því hann kom frá Fenerbache í ágúst 2011 en hann hefur einungis leikið tólf leiki á þessu tímabili.
Arsenal fékk á dögunum Nacho Monreal í sína raðir frá Malaga og í kjölfarið var ljóst að Santos myndi fá lítið af tækifærum það sem eftir er tímabils.
Arsenal hefur einnig vinstri bakvörðinn Kieran Gibbs innan sinna raða auk þess sem Thomas Vermaelen getur spilað sem bakvörður.
Santos hefur því fengið að fara heim til Brasilíu en auk þess að hafa spilað illa þá er hann ekki vinsæll á meðal stuðningsmanna Arsenal eftir að hann bað um treyju Robin van Persie, leikmanns Manchester United og fyrrum leikmanns Arsenal, í hálfleik í rimmu liðana fyrir áramót.