11.02.13 - 12:47
Magnús Már Einarsson
Michael Præst í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Stjarnan hefur gert eins árs samning við við danska miðjumanninn Michael Præst en hann kemur til félagsins frá FC Fyn.
Præst er fjölhæfur leikmaður og leiðtogi og getur spilað sem miðjumaður og varnarmaður.
Hann hefur verið fyrirliði FC Fyn í dönsku fyrstu deildinni, en öllum leikmannasamningum var sagt upp hjá liðinu fyrir 10 dögum þegar félagið var lýst gjaldþrota.
Præst er 26 ára og hefur áður leikið með Vejle, Kolding sem og Fyn og hefur hann leikið um 80 leiki í næstefstu deild í Danmörku.
Stjörnumenn er gríðarlega ánægðir með þennan samning og bíða spenntir eftir að sjá Præst á vellinum og er liðinu sönn ánæga að fá svona sterkan leiðtoga í hópinn.