Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 11. febrúar 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Adam í æfingaferð með aðalliði Gautaborgar
Adam Ingi Benediktsson
Adam Ingi Benediktsson
Mynd: Getty Images
Adam Ingi Benediktsson, markvörður IFK Gautaborgar í Svíþjóð, æfir með aðalliði félagsins í Portúgal en liðið er þar í árlegri ferð til að undirbúa komandi tímabil.

Adam, sem er fæddur árið 2002, gekk til liðs við Gautaborg frá HK í febrúar á síðasta ári en hann hefur æft og spilað með U19 ára liði félagsins.

Hann á að baki leiki fyrir U16, U17 og U18 ára landslið Íslands en hann fær nú mikilvæga reynslu í bankann í Portúgal.

Hann fór þangað með aðalliðinu en liðið undirbúir sig af krafti fyrir tímabilið sem hefst í mars í Svíþjóð.
Athugasemdir
banner
banner
banner