Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 11. febrúar 2020 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Borja Lopez framlengir við Dalvík/Reyni
Borja Lopez í leik með Dalvík/Reyni
Borja Lopez í leik með Dalvík/Reyni
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spænski miðjumaðurinn Borja Lopez framlengdi í gær samning sinn við Dalvík/Reynir út tímabilið en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.

Borja er 25 ára gamall og kom til félagsins fyrir síðasta tímabil en hann skoraði 9 mörk í 19 leikjum í deild- og bikar.

Liðið hafnaði í 8. sæti deildarinnar með 29 stig en nú er ljóst að Borja verður áfram hjá félaginu.

Hann framlengdi samning sinn út tímabilið.

„Borja er mikið gæðablóð, bæði innan sem utan vallar, og góð fyrirmynd fyrir unga leikmenn félagsins. Hann er frábær manneskja og góður leikmaður sem mun hjálpa okkur í þeirri baráttu sem framundan er. Þeim líður vel á Dalvík, hafa aðlagast samfélaginu vel og ekki skemmir það fyrir að hann er nánast orðinn al talandi á íslensku," sagði Garðar Níelsson, formaður félagsins við undirskrift.
Athugasemdir
banner
banner