Fotbolti.net
11.02.20 - 20:00
Aksentije Milisic

Chelsea á eftir varnarmanni Wigan

Chelsea á eftir varnarmanni Wigan
Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea er sagt hafa áhuga á Antonee Robinson varnarmanni Wigan. Þá eru Aston Villa og Newcastle einnig sögð áhugasöm um leikmanninn.

Þessi 22 ára gamli leikmaður var nálægt því að ganga til liðs við AC Milan en félagsskiptin urðu að engu á lokadegi gluggans en einhver vandræði voru varðandi læknisskoðunina.
Chelsea, Aston Villa og Newcastle eru öll sögð áhugasöm um að fá þennan vinstri bakvörð til sín næsta sumar en Robinson yfirgaf Everton síðasta sumar þar sem hann fékk fá tækifæri og gekk til liðs við Wigan.

Robinson hefur spilað 30 leiki fyrir WIgan á þessu tímabili en hann er með samning hjá félaginu til ársins 2022.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.