11.02.20 - 22:17
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Coutinho: Sé ekki eftir neinu

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
<i>„Það kemur mér ekki á óvart að Liverpool sé á fljúgandi siglingu,"</i> sagði Philippe Coutinho, sem er nú á láni frá Barcelona hjá Bayern Munchen, í viðtali við Sports Illustrated í dag.
<i>„Liðið er frábærlega mannað og stjórinn frábær. Liðið sigraði Meistaradeildina í vor svo þetta kemur mér ekki á óvart."</I>
Coutinho var seldur til Barcelona í janúar 2018 en hefur verið orðaður við endurkomu til Liverpool í sumar.

„Ég er mjög glaður fyrir þeirra hönd því ég á marga vini hjá Liverpool. Ég horfi ekki til baka. Ég ákvað mína leið og er á þeirri leið í dag. Ég er einbeittur á mitt á meðan þeir eru einbeittir á sitt. Ég er ánægður með það sem ég afrekaði áður en horfi nú einungis fram veginn."
Coutinho endaði viðtalið á því að segja að hans lið, Bayern, stefnir á að sigra alla titla sem í boði eru.
Coutinho endaði viðtalið á því að segja að hans lið, Bayern, stefnir á að sigra alla titla sem í boði eru.