Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 11. febrúar 2020 09:37
Magnús Már Einarsson
Ighalo verður í hópnum hjá Man Utd gegn Chelsea
Odion Ighalo.
Odion Ighalo.
Mynd: Getty Images
Odion Ighalo, nýr framherji Manchester United, verður í leikmannahópnum gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni á mánudag.

Manchester United hefur verið í æfingaferð á Spáni undanfarna daga en Ighalo fékk ekki að koma með. Ighalo kom til United frá Kína á dögunum og félagið hafði áhyggjur af því að hann myndi ekki fá að koma aftur til Englands frá Spáni út af Kórónaveirunni.

Ighalo var því eftir heima en Ole Gunnar Solskjær, stjóri United, segir að hann verði þrátt fyrir það í hópnum gegn Chelsea.

„Já, hann ferðast með okkur í leikinn. Hann er að vinna í forminu í þessari viku og ég held að við munum ná honum í gang," sagði Solskjær.

„Við þurfum að koma honum sem fyrst inn því að hann vill ólmur spila fyrir okkur."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner