Fotbolti.net
11.02.22 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Douglas Costa til LA Galaxy (Staðfest)

Douglas Costa.

Douglas Costa.

Canon

Mynd: Getty Images

Brasilíski kantmaðurinn Douglas Costa er búinn að fá félagaskipti yfir til Los Angeles Galaxy í Bandaríkjunum.
Hinn 31 árs gamli Costa kemur til með að vera í Los Angeles næstu tvö árin. Hann hefur spilað með Gremio í heimalandi sínu upp á síðkastið.

„Douglas er leikmaður í heimsklassa og hann er búinn að sanna sig sem sigurvegari á hæsta stigi leiksins," sagði Greg Vanney, þjálfari LA Galaxy.

Costa hefur spilað fyrir tvö af stærstu félögum Evrópu; Bayern München og Juventus. Hann lék einnig um langt skeið með Shakhtar Donetsk í Úkraínu.

Costa hefur þá spilað 31 landsleik fyrir Brasilíu og var hluti af liðinu sem tók þátt á HM 2018 í Rússlandi.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.