11.02.22 - 16:34
Elvar Geir Magnússon
Hólmar Örn í Val (Staðfest) - Gerði þriggja ára samning

Hólmar í leik með Rosenborg í Kaplakrika.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Hólmar í leik með Rosenborg í Kaplakrika.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Varnarmaðurinn Hólmar Örn Eyjólfsson hefur gert þriggja ára samning við Val. Fleiri félög, þar á meðal Víkingur og FH, reyndu að fá Hólmar en hann ákvað á endanum að fara til Valsmanna.
Hólmar hefur undanfarin ár leikið með Rosenborg í Noregi en fjölskylda hans flutti til Íslands á síðasta ári.
Hólmar er 31 árs og er uppalinn hjá Tindastóli og HK. Hann hefur verið í atvinnumennsku frá árinu 2008, fyrst hjá West Ham en fór svo til Bochum, Rosenborg, Maccabi Haifa og Levski Sofia áður en hann sneri aftur til Rosenborg árið 2020. Á ferlinum hefur hann leikið nítján landsleiki en hætti að gefa kost á sér á síðasta ári.
Komnir og farnir hjá Val:
Komnir
Hólmar Örn Eyjólfsson frá Rosenborg
Aron Jóhannsson frá Lech Poznan
Ágúst Eðvald Hlynsson frá Danmörku (á láni)
Heiðar Ægisson frá Stjörnunni
Guy Smit frá Leikni R.
Orri Hrafn Kjartansson frá Fylki
Kári Daníel Alexandersson frá Gróttu (var á láni)
Farnir
Christian Köhler í ÍA
Hannes Þór Halldórsson
Johannes Vall í ÍA
Kristinn Freyr Sigurðsson í FH
Kaj Leo í Bartalsstovu
Magnus Egilsson