Fotbolti.net
11.02.22 - 10:55
Brynjar Ingi Erluson

Kristin Schnurr í FH (Staðfest)

Kristin Schnurr í FH (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Kvennaboltinn
Kristin Schnurr er búin að fá félagaskipti frá sænska félaginu Kalmar yfir í FH en þetta kemur fram í tilkynningu frá FH-ingum í dag.
Schnurr, sem er 25 ára gömul, kemur frá Bandaríkjunum og spilaði fyrir Penn State-háskólann áður en hún samdi við Kalmar fyrir síðustu leiktíð.

Hún hjálpaði Kalmar að komast upp í efstu deild í Svíþjóð en heldur nú til Íslands og mun leika með FH í sumar.

Schnurr gerði samning við FH út tímabilið.

FH var nálægt því að komast aftur upp í efstu deild á síðasta tímabili en liðið hafnaði í 3. sæti Lengjudeildarinnar með 36 stig, aðeins fjórum stigum á eftir Aftureldingu sem hafnaði í öðru sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.