Fotbolti.net
11.02.22 - 19:31
Ívan Guðjón Baldursson

Matt Turner til Arsenal (Staðfest)

Matt Turner til Arsenal (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Félagaskipti Matt Turner til Arsenal hafa verið staðfest af New England Revolution. Bandaríski landsliðsmarkvörðurinn skiptir um félag næsta sumar og mun berjast við Aaron Ramsdale um byrjunarliðssæti.
Turner er 27 ára gamall aðalmarkvörður bandaríska landsliðsins. Hann hefur leikið fyrir New England Revolution undanfarin ár og fær félagið tæpar 10 milljónir punda fyrir markvörðinn.

Turner mun að öllum líkindum taka stöðu Bernd Leno í leikmannahópi Arsenal. Búist er við að Leno verði seldur í sumar.

Newcastle hafði einnig áhuga á Turner en Arsenal vann kapphlaupið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.