Fotbolti.net
11.03.13 - 17:45
Elvar Geir Magnússon

McDermott rekinn frá Reading (Staðfest)

McDermott rekinn frá Reading (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Enska úrvalsdeildarfélagið Reading hefur tilkynnt að Brian McDermott sé ekki lengur knattspyrnustjóri liðsins.

McDermott stýrði Reading upp í úrvalsdeildina á síðasta tímabili en erfiðlega hefur gengið á yfirstandandi tímabili og liðið er nú fjórum stigum frá öruggu sæti.
Í yfirlýsingu frá Reading segir að eigandinn Anton Zingarevich hafi talið að breytinga væri þörf en McDermott er þakkað fyrir hans störf fyrir félagið.

„Leitin að nýjum stjóra er þegar farin af stað. Vonast er til að nýr maður verði ráðinn sem fyrst,\" segir í yfirlýsingunni.

McDermott hefur starfað sem knattspyrnustjóri Reading síðan 2009.

Liðið tapaði 2-1 í fallbaráttuslag gegn Aston Villa um liðna helgi og var það fjórði tapleikur þess í röð.

Tveir af þeim þremur stjórum sem stýrðu liðum upp í úrvalsdeildina síðasta tímabil hafa því verið reknir en fyrr á tímabilinu fékk Nigel Adkins að finna fyrir stígvélinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.