Fotbolti.net
11.03.14 - 15:38
Magnús Már Einarsson

Alan Pardew í sjö leikja bann (Staðfest)

Alan Pardew í sjö leikja bann (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alan Pardew, stjóri Newcastle, hefur verið úrskurðaður í sjö leikja bann eftir að hann skallaði David Melyer miðjumann Hull í leik liðanna á dögunum.

Þrír leikir af banninu eru leikvallabann sem þýðir að Pardew má ekki einu sinni vera upp í stúku.

Í hinum fjórum leikjunum sem hann tekur út í banni má hann vera í stúkunni.
Pardew var einnig sektaður um 60 þúsund pund eða rúmar ellefu milljónir króna.

Newcastle á tíu leiki eftir á tímabilinu en Pardew mun snúa aftur fyrir síðustu þrjá leiki liðsins gegn Arsenal, Cardiff og Liverpool.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.