11.03.14 - 21:31
Alexander Freyr Tamimi
Hemmi Hreiðars nýr formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Fylki (Staðfest)

Hemmi Hreiðars er kominn til Fylkis.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hermann Hreiðarsson, fyrrum landsliðsfyrirliði Íslands og þjálfari ÍBV, er tekinn við sem nýr formaður meistaraflokksráðs kvenna hjá Fylki. Þetta kemur fram á Fylkismenn.is.
Fylkisstúlkur tryggðu sér sæti í Pepsi-deild kvenna fyrir komandi sumar eftir góðan sigur í 1. deildinni. Ragna Lóa Stefánsdóttir, þjálfari kvennaliðs Fylkis, er einmitt eiginkona Hermanns og ætlar liðið sér stóra hluti í sumar.
Hermann á að baki 89 landsleiki og var hann landsliðsfyrirliði lengi vel.
Hann lék á Englandi frá sumrinu 1997, þegar hann gekk til liðs við Crystal Palace frá ÍBV, og spannar ferill hans fjölmörg lið þar í landi.
Hápunktur ferils hans ytra var árið 2008 þegar hann varð enskur bikarmeistari með Portsmouth.
Hermann tók við þjálfun ÍBV fyrir síðustu leiktíð og endaði liðið í 6. sæti Pepsi-deildarinnar. Hann lék einnig fimm leiki með liðinu í deildinni og þrjá í Evrópudeildinni.

Heimild: Fylkismenn.is