11.03.14 - 11:10
Magnús Már Einarsson
James Hurst í Val (Staðfest)

James Hurst.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

James Hurst.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Valsmenn hafa fengið hægri bakvörðinn James Hurst til liðs við sig.
Hurst lék með Val í byrjun tímabils í fyrra áður en hann fór til Crawley Town í ensku C-deildinni í júlí.
Hurst lék 22 leiki með Crawley í vetur áður en hann var leystur undan samningi hjá félaginu á dögunum. Í kjölfarið fór Hurst til norska félagsins Sandnes Ulf á reynslu en nú hefur hann samið við Val.

,,Koma Hurst undirstrikar að Valur mun tefla fram firnasterku liði á komandi tímabili,\" segir í tilkynningu frá Val.
Hinn 22 ára gamli Hurst lék fyrst með ÍBV á láni frá Portsmouth árið 2010 þar sem hann vakti athygli fyrir góða frammistöðu.
Í kjölfarið fór Hurst til WBA þar sem hann lék einn leik í ensku úrvalsdeildinni en hann hefur einnig spilað með Blackpool, Shrewsbury Town, Chersterfield og Birmingham á Englandi.