Fotbolti.net
11.03.14 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Spalletti rekinn frá Zenit (Staðfest)

Luciano Spalletti er atvinnulaus í bili

Luciano Spalletti er atvinnulaus í bili

Canon

Mynd: Getty Images

Zenit hefur ákveðið að reka Ítalann Luciano Spalletti úr þjálfarastöðu félagsins.

Spalletti vann rússnesku deildina með Zenit tvö tímabil í röð en tapaði titlinum á síðasta tímabili til CSKA Moscow.
Nú er Zenit tveimur stigum frá toppliði Lokomotiv Moscow og við það að vera slegið úr Meistaradeildinni af Borussia Dortmund.

Sergei Semak, fyrrverandi miðjumaður Zenit, mun taka við stjórn liðsins út tímabilið. Semak lagði takkaskóna á hilluna fyrir ári, er 38 ára gamall og á 65 landsleiki að baki fyrir Rússa.

Heimild: Goal/Yahoo

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.