11.03.16 - 12:42
Elvar Geir Magnússon
Gummi Ben lýsir leikjum Íslands á EM (Staðfest)

Gummi Ben verður í Frakklandi.

Mynd: Fótbolti.net - Mate Dalmay

Gummi Ben verður í Frakklandi.

Mynd: Fótbolti.net - Mate Dalmay
Vinsælasti íþróttalýsandi landsins, Guðmundur Benediktsson, mun lýsa leikjum Íslands á Evrópumótinu í sumar. Þetta kemur fram á Vísi en Skjárinn, sem á réttinn á mótinu, leigir Guðmund af 365.
„Við getum ekki staðið í vegi fyrir því að besti lýsari landsins fari til Frakklands og lýsi sögulegasta íþróttaviðburði þjóðarinnar,\" segir Ágúst Héðinsson, yfirmaður íþróttadeildar 365, í samtali við Vísi.
Opnunarleikur EM er viðureign Frakka og Rúmena þann 10. júní en fjórum dögum síðar leikur Ísland sinn fyrsta leik á mótinu, gegn Portúgal. Ísland er einnig með Ungverjalandi og Austurríki í riðli.
Eins og opinberað var í desember mun sjónvarpsmaðurinn reynslumikli Þorsteinn Joð Vilhjálmsson sjá um EM-stofuna en hann er umsjónarmaður keppninnar fyrir Skjáinn.
Skjárinn hefur gefið það út að allir leikir Íslands á mótinu verði sýndir í opinni dagskrá.
Guðmundur Benediktsson starfar sem aðstoðarþjálfari KR ásamt því að lýsa leikjum á Stöð 2 Sport.