11.03.16 - 14:26
Elvar Geir Magnússon
Hannes Þór í Bodö/Glimt (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson er búinn að ganga frá samningum við Bodö/Glimt í norsku úrvalsdeildinni. Hann kemur á láni frá NEC Nijmegen. Þetta staðfesti Hannes í samtali við Fótbolta.net rétt í þessu.
Hannes er byrjaður að æfa á fullu á nýjan leik eftir að hafa farið úr axlarlið í október.
Í millitíðinni krækti NEC Nijmegen í Brad Jones, fyrrum markvörð Liverpool, og hann hefur farið á kostum undanfarnar vikur.
Til að fá leiki fyrir EM í sumar þá ákvað Hannes að fara til Noregs á láni. Lánssamningur hans hjá Bodö/Glimt er til 18. júlí næstkomandi.
Boltinn byrjar að rúlla í norsku úrvalsdeildinni um helgina en Bodö/Glimt mætir Sogndal í fyrstu umferðinni á sunnudag.
Viðtal við Hannes birtist á Fótbolta.net innan tíðar.