Fotbolti.net
11.03.16 - 19:34
Arnar Geir Halldórsson

John Arne Riise í Álasund (Staðfest)

Annar Evrópumeistari í norska boltann

Annar Evrópumeistari í norska boltann

Canon

Mynd: Getty Images

Leikjahæsti leikmaður norska landsliðsins frá upphafi, John Arne Riise, hefur samið við uppeldisfélag sitt, norska úrvalsdeildarliðið Álasund.
Með Álasund leika þrír íslenskir knattspyrnumenn, þeir Aron Elís Þrándarson, Adam Örn Arnarson og Daníel Leó Grétarsson.

Atvinnumannaferill Riise hófst hjá Álasund þegar hann var 16 ára gamall og lék hann 25 leiki áður en hann hélt til Monaco í Frakklandi. Árið 2001 hélt Riise til Liverpool þar sem hann lék til ársins 2008 og vann meðal annars Meistaradeild Evrópu með liðinu.

Frá Liverpool fór Riise til AS Roma og lék á Ítalíu í þrjú ár áður en hann sneri aftur í ensku úrvalsdeildina og spilaði með Fulham. Þaðan hélt hann til Kýpur og nú síðast lék Riise með Delhi Dynamos í indversku ofurdeildinni.

Bróðir hans, Björn Helge Riise, leikur með Álasund en þeir bræður léku saman hjá Fulham á sínum tíma.

Tilkynnt var um samninginn við Riise fyrir opnunarleik norsku úrvalsdeildarinnar í kvöld, þar sem Stabæk er í heimsókn hjá Álasund en leikurinn er enn í gangi þegar þessi frétt er skrifuð.

All signed! Great to be back where it all started!! Thanks for your support and everyone making this happen 🙏🏻 pic.twitter.com/1EG0VwNRF6

— John Arne Riise (@JARiiseOfficial) March 11, 2016

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.