Fotbolti.net
11.03.16 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Lilja Dögg skrifar undir nýjan samning við Val (Staðfest)

Lilja Dögg í leik með Val síðasta sumar.

Lilja Dögg í leik með Val síðasta sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Kvennaboltinn
Lilja Dögg Valþórsdóttir er búin að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við knattspyrnudeild Vals.

Lilja Dögg, sem verður 34 ára á þessu ári, á yfir 200 meistaraflokksleiki að baki, þar sem hún hefur meðal annars leikið fyrir Stjörnuna, KR og Breiðablik. Lilja Dögg lék þá 11 leiki fyrir Val á árunum 2001 til 2003.
„Valur er lið sem á að vera að berjast um titla á hverju ári og það er greinilega hugur í öllum í liðinu sem og í kringum liðið að gera mun betur á komandi keppnistímabili,\" sagði Lilja við vefsíðu Vals, Valur.is.

Lilja Dögg gekk til liðs við Val um mitt síðasta tímabil og fór beint í byrjunarliðið þar sem hún lék 14 deildarleiki.

Heimild: Valur.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.