11.03.16 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Novellino áttundi þjálfari Palermo á tímabilinu (Staðfest)

Novellino er hér í blárri treyju frá Modena þegar hann stýrði því gegn forvera sínum Beppe Iachini þegar sá var við stjórnvölinn hjá Palermo.

Mynd: Getty Images

Palermo er búið að staðfesta ráðninguna á Walter Novellino sem nýjum þjálfara Palermo í ítölsku efstu deildinni.
Þjálfarastarfið hjá Palermo er líklega ótraustasta starf í heimi um þessar mundir en Novellino er áttundi þjálfarinn sem er ráðinn til starfa á þessu tímabili eftir að Beppe Iachini sagði af sér fyrr í vikunni.

Iachini var rekinn frá Palermo fyrr á tímabilinu en fenginn til að taka við því aftur fyrir nokkrum vikum. Iachini stýrði Palermo í tveimur leikjum frá endurráðningunni og sagði svo af sér.
„US Citta di Palermo kynnir Walter Novellino sem nýjan þjálfara aðalliðsins,\" stendur í yfirlýsingu frá félaginu.
„Þjálfarinn, sem fæddist í Montemarano þann 4. júní 1953, hefur meðal annars stýrt Napoli, Torino og Sampdoria á ferlinum.\"
Palermo er í bullandi fallbaráttu, einu stigi fyrir ofan nýliða Frosinone sem eru í fallsæti og lögðu Emil Hallfreðsson og félaga í Udinese að velli í síðustu umferð.