Fotbolti.net
11.03.16 - 14:36
Magnús Már Einarsson

Rafa Benítez tekinn við Newcastle (Staðfest)

Rafa Benítez tekinn við Newcastle (Staðfest)
Canon

Mynd: Newcastle

Rafa Benítez hefur verið ráðinn knattspyrnustjóri Newcastle en félagið staðfesti þetta nú rétt í þessu.

Hann tekur við af Steve McClaren sem var rekinn í morgun.

Rafa skrifaði undir þriggja ára samning við Newcastle en orðrómur er um að hann geti farið frá félaginu í sumar ef fall úr ensku úrvalsdeildinni verður niðurstaðan í vor.

Newcastle er í augnablikinu í fallsæti en liðið mætir toppliði Leicester á mánudag.
Benitez var rekinn frá Real Madrid í janúar en hann þjálfaði áður Liverpool í áraraðir sem og Chelsea í nokkra mánuði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.