Adrian varði mark Liverpool er liðið var slegið úr leik í Meistaradeild Evrópu fyrr í kvöld.
Spánverjinn gerðist sekur um skelfileg mistök í stöðunni 2-0 fyrir Liverpool snemma í framlengingunni.
Honum mistókst að hreinsa knöttinn frá markinu og varð það að fyrsta marki Atletico í leiknum.
„Mjög sorgmæddur og vonsvikinn með úrslit kvöldsins, þetta var ekki það sem við bjuggumst við," skrifaði Adrian á Twitter.
„Vil þakka fyrir stuðninginn, við höfum enn stór markmið á tímabilinu.
„LFC kemur alltaf til baka"
Very sad and disappointed for the result tonight, clearly not what we were expecting. Thanks to all the fans for the support, we still have big objectives ahead this season.@LFC always comes back pic.twitter.com/sMVqQqp4qF
— Adrián San Miguel (@AdriSanMiguel) March 11, 2020
Athugasemdir