Fotbolti.net
11.03.20 - 22:49
Ívan Guðjón Baldursson

Myndband: Leikmenn PSG hermdu eftir Haaland

Myndband: Leikmenn PSG hermdu eftir Haaland
Canon

Mynd: Getty Images

Paris Saint-Germain sló Borussia Dortmund úr leik í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar fyrr í kvöld.
Norðmaðurinn ungi Erling Braut Haaland var aðalmaðurinn í fyrri leiknum og skoraði bæði mörk Dortmund í 2-1 sigri.

Hann mætti kokhraustur til Parísar og birti myndskeið á Snapchat þar sem hann skrifaði „Þetta er mín borg, ekki ykkar".

Honum tókst þó ekki að skora á áhorfendalausum Parc des Princes og hafði PSG betur, 2-0, og kemst áfram í næstu umferð.

Neymar skoraði fyrsta mark leiksins með skalla eftir hornspyrnu og hermdi eftir fagni Haaland úr fyrri viðureigninni.

Að leikslokum settust allir leikmenn PSG saman fyrir liðsmynd þar sem þeir hermdu eftir fagni Haaland, til að strá salti í sárin.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.