Damir framlengir við Breiðablik (Staðfest)


Mynd: KSÍ


Mynd: KSÍ
Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan samning við Breiðablik í Bestu deild karla en þetta staðfesti félagið í kvöld.
Um er að ræða 31 árs gamlan miðvörð sem hefur leikið 270 leiki fyrir meistaraflokk Breiðabliks eftir að hafa samið við félagið árið 2014.
Damir er gríðarlega mikilvægur leikmaður fyrir Blika en hann lék einnig sinn fyrsta landsleik fyrir Ísland fyrr á þessu ári.
Tilkynning Breiðabliks:
Varnarmaðurinn öflugi Damir Muminovic hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við knattspyrnudeild Breiðabliks.
Damir er 31 árs og á að baki 270 mótsleiki með meistaraflokki Breiðabliks frá því að hann kom til félagsins árið 2014. Hann er orðinn fimmti leikjahæsti leikmaður Breiðabliks frá upphafi og ljóst að leikirnir verða enn fleiri á komandi árum.
Damir sem hefur verið einn af bestu hafsentum deildarinnar í langan tíma lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Íslands hönd fyrr á árinu.
Damir er stór hlekkur í Blikafjölskyldunni og mikið fagnaðarefni að við fáum að njóta krafta hans áfram
