11.03.22 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Haukar fá þrjá leikmenn (Staðfest)

Lára Mist Baldursdóttir er gengin í raðir Hauka

Mynd: Fótbolti.net - Hulda Margrét

Knattspyrnudeild Hauka er búið að ganga frá samningum við þrjá nýja leikmenn en Lára Mist Baldursdóttir, Mafer Contreras og Keri Birkenhead eru allar gengnar til liðs við félagið.
Lára Mist er fædd árið 1998 og kemur til Hauka frá Stjörnunni en hún á 78 meistaraflokksleiki að baki.
Hún þekkir vel til hjá Haukum en hún var á láni hjá félaginu árið 2019 og 2021 og hefur spilað 24 leiki með liðinu í Lengjudeildinni.
Contreras er 22 ára gömul og spilar stöðu miðjumanns. Hún kemur frá Gvatemala og spilaði sína fyrstu landsleiki fyrir þjóðina á dögunum og skoraði meðal annars sitt fyrsta landsliðsmark.
Birkenhead er einnig 22 ára gömul en hún kemur frá Bandaríkjunum og spilar stöðu sóknarmanns. Hún lék með háskólanum í Illinois og er mikill markaskorarari.
Haukar höfnuðu í 5. sæti Lengjudeildarinnar á síðasta tímabili með 22 stig.