Fotbolti.net
11.03.22 - 14:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Hildur Björk í HK (Staðfest)

Hildur Björk í HK (Staðfest)
Canon

Mynd: HK

Kvennaboltinn
HK hefur krækt í liðsstyrk fyrir komandi átök í Lengjudeildinni. Hildur Björk Búadóttir er gengin til liðs við félagið á láni frá Val.

Hún er fædd árið 2004 og lék með KH í 2. deild í fyrra, skoraði tvö mörk í tólf leikjum.
Hildur er uppalin Valsstelpa og hefur komið við sögu hjá Valsliðinu á undirbúningstímabilinu.

Hún er efnilegur leikmaður sem getur spilað flestar stöður í vörninni.

Hildur á samkvæmt tilkynningu HK að baki níu landsleiki fyrir yngri landslið Íslands.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.