Fotbolti.net
11.03.22 - 07:00
Brynjar Ingi Erluson

Tindastóll fær franskan markaskorara (Staðfest)

Yves Ngassaki

Yves Ngassaki

Canon

Mynd: Knattspyrnudeild Tindastóls

Tindastóll gekk í gær frá samningum við franska sóknarmanninn Yves Ngassaki en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu.
Ngassaki, sem er fæddur árið 1996, ólst upp hjá Celtenham á Englandi en hefur síðustu ár spilað með CMS Oissel og Sherbrooke-háskólanum í Kanada.

„Yves er stór, sterkur og fljótur framherji sem á eftir að nýtast okkar liði alveg frábærlega."

„Við ætlumst til mikils af honum i sumar og væntum þess að okkar frábæra samfélag taki vel á móti honum þegar hann mætir á svæðið í apríl," sagði Donni, þjálfari Tindastóls.

Tindastóll féll úr 3. deildinni síðasta sumar og spilar í B-riðli 4. deildarinnar í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.