11.04.13 - 16:46
Elvar Geir Magnússon
Ægir fær serbneskan sóknarmann (Staðfest)

Mynd: Facebook-síða Ægis

Mynd: Facebook-síða Ægis
Ægir Þorlákshöfn hefur fengið til sín serbneskan sóknarmann sem heitir Darko Matejic. Um er að ræða 26 ára leikmann sem kemur frá serbneska C-deildarliðinu FK Sumadija Jagnjilo.
Hann mætti á sína fyrstu æfingu í gær.
Þá eru Aco Pandurevic og Ivan Razumovic einnig komnir til landsins og spila með Ægi í sumar. Pandurevic er snöggur bakvörður sem kom fyrst í Þorlákshöfn síðari hluta sumarsins 2011 og lék einnig með liðinu síðasta sumar.
Razumovic var í hjarta varnar Ægis allt síðasta sumar og var mikil ánægja með frammistöðu hans.
Ægismenn unnu sér inn sæti í 2. deild síðasta tímabil.