11.04.13 - 14:00
Magnús Már Einarsson
Alejandro Berenguer Munoz í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)

Alejandro (með markmannshanskana) á æfingu hjá Hercules. Við hlið hans er franski framherjinn David Trezeguet.

Mynd: Netið

Spænski markvörðurinn Alejandro Berenguer Munoz hefur gengið til liðs við BÍ/Bolungarvík.
Alex, eins og Alejandro er kallaður, kom til æfinga hjá BÍ/Bolungarvík fyrr í vikunni og hann hefur nú samið við félagið.

Tímabilið 2010/2011 var Alex á mála hjá Hercules í Alicante þegar liðið lék í spænsku úrvalsdeildinni.
Hann var meðal annars á bekknum í sex leikjum hjá liðinu í úrvalsdeildinni það tímabil en á meðal leikmanna liðsins þá var David Trezeguet fyrrum framherji Juventus.
Undanfarin tvö tímabil hefur Alex síðan verið á mála hjá Denia í spænsku þriðju deildinni en hann lék einnig með Alicante CF og Jove Espanol í yngri flokkunum.
BÍ/Bolungarvík hefur verið í markmannsleit í vetur eftir að Þórður Ingason fór frá félaginu til Fjölnis.